Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Dianthus carthusianorum
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   carthusianorum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Keisaradrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti   D. atrorubens All; D. sanguineus Vis.; D. tenuifolius Schur.
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Purpura eða bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   50-60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Keisaradrottning
Vaxtarlag   Fjölæringur, oftast hárlaus, með 4-kantaða stöngla allt að 60 sm háa.
     
Lýsing   Lauf bandlaga allt að 2 sm x 5 mm, flöt með mjög löng slíður. Blóm í meira eða minna þéttum , sveiplíkum kvíslskúf með lensulaga eða aflöng stoðblöð. Bikar 1-2 sm, utanbikarflipar öfugegglaga eða öfughjartalaga með stuttum enda. Meira eða minna himnukennd, styttri en bikarinn. Krónublaðkan 1-1,5 sm öfugegglaga, tennt , með skegg, purpura bleik eða sjaldan hvít. Blómgast í júlí - sept.
     
Heimkynni   S & M Evrópa.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker, í kanta, í beð með fjölærum plöntum.
     
Reynsla   Hefur lifað samfellt í ein 10 ár í garðinum (nokkur eintök í ræktun sem stendur). Harðger og auðræktuð tegund.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Keisaradrottning
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is