Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Dodecatheon dentatum
Ættkvísl   Dodecatheon
     
Nafn   dentatum
     
Höfundur   W.J. Hooker
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hjartagoðalykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   Síðla vors til snemmsumars.
     
Hæð   15-25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Mjög breytilegar plöntur, engin æxlikorn.
     
Lýsing   Lauf gróftennt, 7-15 x 1-4 sm, egglaga til lensulaga, mjókka snögglega að grunni eða með hjartalaga grunni. Blómstönglar 13-25 sm með 2-5 blóm. Króna með 5 flipa, allt að 2 sm, hvít. Frjóþræðir lausir hver frá öðrum eða lítið eitt samvaxnir, gulir til brúnrauðir, < 1 mm , frjóhnappar gulir til brúnrauðir, tenglsin slétt. Fræni ekki stækkuð. Fræhýðistennur hvassyddar.
     
Heimkynni   SV Bandaríkinn - N Mexíkó.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum - í F1 frá 1992.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is