Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Anemone tetrasepala
Ættkvísl   Anemone
     
Nafn   tetrasepala
     
Höfundur   Royle.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Stinnasnotra
     
Ætt   Ranunculaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól (hálfskuggi)
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   síðsumars
     
Hæð   0,6-0,75m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Stinnasnotra
Vaxtarlag  
     
Lýsing   blöðin við grunn stilkuð, ullhærð, tennt og mikið skipt, stöngulblöðin fjögur, ásætin, líkjast stofnblððum en smærri, flipar mjórri, blómin í sveipum, hver sveipur með 3-5 stilkuðum blómum, blómblöðin 4 en Þó stundum 5-7, hvít, stílar undnir
     
Heimkynni   V Himalaya
     
Jarðvegur   léttur, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   fjölær beð, skrautblómabeð
     
Reynsla   hefur reynst vel
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Stinnasnotra
Stinnasnotra
Stinnasnotra
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is