Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Potentilla fruticosa 'Goldstar'
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   fruticosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Goldstar'
     
Höf.   Barmstedt 1976
     
Íslenskt nafn   Runnamura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   ('Goldteppich' x 'Hachmanns Gigant’)
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gullgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   70-80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Runnamura
Vaxtarlag   Hálfuppréttur runni, allt að 80 sm hár, útbreiddur.
     
Lýsing   Blóm 4-5 sm í þvermál, gullgul, mörg.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   = 7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, 7,5 sm langir græðlingar með hæl síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í raðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1994 og gróðursettar í beð 2004. Blómgast um og eftir mitt sumar og hefur reynst vel hérlendis. Meðalharðgerð-harðgerð planta.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Runnamura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is