Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Arenaria montana
Ættkvísl   Arenaria
     
Nafn   montana
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallasandi
     
Ætt   Caryophyllaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   júní-ágúst
     
Hæð   0.12-0.15m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   myndar brúska af uppsveigðum stönglum
     
Lýsing   blómin allstór, breið krónublöð (minna á sóleyjablóm) lensulaga blöð
     
Heimkynni   SV Evrópa
     
Jarðvegur   Þurr, framræstur, sendinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   sáning, skipting
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, skrautblómabeð
     
Reynsla   Viðkvæmur, Þarf skýlingu, mætti auðveldlega rækta sem sumarblóm
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is