Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lathyrus odoratus
Ættkvísl   Lathyrus
     
Nafn   odoratus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ilmertur
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Einær jurt - sumarblóm.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Purpura og fleiri litir.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ilmertur
Vaxtarlag   Einær jurt, allt að 200 sm há. Stönglar dálítið dúnhærðir. Axlablöð allt að 2,5 x 0,4 sm, lensulaga, hálf-spjótlaga, smálauf allt að 6 x 3 sm, eitt par, oddbaugótt til egglaga-aflöng, allt að 6 x 3 sm.
     
Lýsing   Klasar 1-3-blóma. Bikar bjöllulaga. Króna allt að 2,5 sm, venjulega purpura, en auðvitað núna dálítið breytt og með mjög breytilega liti. Aldin allt að 7 sm x 12 mm, brún, dúnhærð, með 8 fræ, fræin slétt, svart-brún.
     
Heimkynni   Krít, Ítalía, Sikiley
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Klifurplanta á/við veggi, á grindur og víðar, má nota í ker og kassa.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun af og til.
     
Útbreiðsla  
     
Ilmertur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is