Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Fragaria 'Pink Pagoda'
Ættkvísl   Fragaria
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Pink Pagoda'
     
Höf.   Líklega réttara: ´Pink Panda'
     
Íslenskt nafn   'Pink Panda'
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Rauðbleikur.
     
Blómgunartími   Maí-september.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
'Pink Panda'
Vaxtarlag   Útbreidd jurt, myndar breiður, skýtur út löngum grönnum rótskeyttum hliðarrenglum.
     
Lýsing   Laufin samsett, 3-fingruð, dökkgræn, smálaufin oddbaugótt, bogadregin í oddinn, snubbótt við grunninn, laufin 2-3 sm löng. Blómin bleik, koma flest að vorinu, seinna koma lítil ilmandi jarðarber.
     
Heimkynni   Garðauppruni (F. x ananassa x Potentilla palustris).
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór, lífefnaríkur, súr, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, https://plantdatabase. kup.ca/plant.ca/plant/plantDetails/113
     
Fjölgun   Sáning, hliðarrenglur.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, sem þekjurt, í beð, í breiður, til berjatöku.
     
Reynsla   Harðgerð jurt - ath. - virðist þrífast vel í Grasagarði Reykjavíkur. Myndirnar teknar þar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
'Pink Panda'
'Pink Panda'
'Pink Panda'
'Pink Panda'
'Pink Panda'
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is