Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Adonis brevistyla
Ættkvísl   Adonis
     
Nafn   brevistyla
     
Höfundur   Franch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ljósagoði
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti   Réttara: Adonis davidii Franchet
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Apríl-ágúst.
     
Hæð   20-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ljósagoði
Vaxtarlag   Uppréttir blómstilkar, jarðstönglar um það bil 8 mm í þvermál.
     
Lýsing   Blómstilkar (10-)20-40(-58) sm háir, greinast oftast frá grunni, hárlausir, neðst eru himnukennd hreistur. Leggir neðstu stilklaufa allt að 7 sm lagir, en ofar eru blöðin leggstutt eða legglaus. Blaðkan er fimmhyrnd til þríhyrnd-egglaga, 3,5-9 x 3,5-10 sm, þrískipt, hárlaus, smálauf tvífjaðurskipt, endableðill mjóegglaga til lensulaga, hvasstenntur. Blómin (1,5-)1,8-2,8 sm í þvermál. Bikarblöð 5-7, oddbaugótt, 5-8 mm löng, hárlaus, sjaldan kögruð. Krónublöð 7-14 talsins, hvít, stundum með purpuralitri slikju, öfugegglaga-aflöng 1-1,4 sm, bogadregin eða +/- hvassydd í enda. Fræflar jafnlangir bikarblöðum. Eggleg lítillega smádúnhærð. Stílar mjög stuttir, fræni hárlaus, hnetur/fræ öfugegglaga, 3-4 mm, ögn dúnhærð.
     
Heimkynni   Kína.
     
Jarðvegur   Vex best í frjóum, vel framræstum en þó rakaheldum jarðvegi.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Flora of China netútgáfa,
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í steinhæðir, í kanta.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum (B6-A. Ræktuð í LA frá 1994 - mjög fínleg og flott steinhæðarplanta sem þó þolir að vera í jaðri á fjölæringabeði svo fremi að ekki safnist vatn að henni að vetri.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ljósagoði
Ljósagoði
Ljósagoði
Ljósagoði
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is