Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Aster ericoides
Ættkvísl   Aster
     
Nafn   ericoides
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lyngstjarna
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti   A. parviceps (Burgess) Mack. & Busli; Virgulus ericoides (L.) Reveal & Kerner
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur eða bleikur/gulur hvirfill
     
Blómgunartími   síðsumars
     
Hæð   0,7-1m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Skriðulir jarðstönglar. Blómstönglar grannir, marggreindir ofan til, allt að 1,2m.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 5 sm x 4,5 mm, stöku sinnum allt að 7mm breið, bandlaga, band ? öfuglensulaga eða band ? lensulaga, heilrend, útstæð, sum með blaðstilk en önnur ekki. Stöngullauf mun minni og í stoðblaðastíl. Körfur 1 ? 1,2 sm í þvermál, fjölmargar í skúf sem oftast er pýramídalaga. Skúfurinn er með mörg lítil bandlaga geld stoðblöð. Reifar 3 ?5 mm með háar bollalaga, reifablöð misstór, flöt, hvert þeirra með vel aðgreindan tígullaga, oddbaugóttan eða öfugegglaga grænan blett, enda snögglega í litlum gagnsæjum þyrni, oftast raðað reglulega þannig að þau mynda munstur, ytri reifablöðin ekki aðlæg. Tungur 15 ?20, 4 ?5 mm, hvítar eða stundum bleikar. Hvirfill gulur. Svifkrans u.þ.b. 3 mm. Blómgast síðsumars.
     
Heimkynni   A & M N Ameríka
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, frjór, rakaheldinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3; H1
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   skipting að vori, sáning
     
Notkun/nytjar   fjölær beð, baka til
     
Reynsla   Hefur reynst þokkalega í garðinum og lifað í fjölmörg ár - reyndar er sú sem hefur lifað lengst er undir nafninu Aster ericoides v. pansus sem er mjög lík aðaltegund en þýfð, hefur vaxið í K1-D10 frá 1985. Þarf stuðning þegar líður á sumarið.
     
Yrki og undirteg.   Aster ericoides v. prostratus (Kuntze) Blake er aðgreind á útstæðum hárum, ekki á því að hún sé jarðlæg. Vex í þurrum jarðvegi. Fjölmörg yrki í ræktun erlendis og vert væri að prófa þau. Má t.d. nefna 'Blue Wonder', 'Blue Star', 'Golden Spray', 'Pink Cloud', 'Esther' og mörg fleiri eru nefnd í RHS
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is