Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Rosa rugosa 'Alexander MacKenzie'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   rugosa
     
Höfundur   Thunb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Alexander MacKenzie'
     
Höf.   (Dr. Felicitas Svejda 1985) Kanada.
     
Íslenskt nafn   Ígulrós (garðarós)
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa 'A. MacKenzie', 'Alexander MacKenzie', Allux`s Mackenzie Svedja, Kanada 1982.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúprauður.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Foreldrar: 'Queen Elizabeth' x ('Red Dawn' x 'Suzanne'), Kynbætt og ræktað upp af Svejda 1982, komið á framfæri og í sölu 1985. Rosa rugosa 'Alexander MacKenzie' er ígulrósarblendingur og kanadísk rós, ein af svonefndum ‘explorer’ rósum. Runninn er uppréttur og kröftugur, verður 150 sm hár og álika breiður, er stór og mikill klifrurrunni. Hann er mjög harðgerður með glansandi, ljósgrænt lauf.
     
Lýsing   Knúbbar eru egglaga, yddir. Blómin eru djúprauð, bollalaga, minna á blóm á floribunda rósum og eru í klösum með 6-12 blóm. Þau eru hálffyllt, ilmandi. ‘Alexander MacKenzie’ er líka til sem klifurós. Blómin eru meðalstór, bollalaga, flott, þéttfyllt, rósbleik/djúprauð, með 45 krónublöð, minna á terós, ilmandi, ilmur eins og af nýtíndum hindberjum, standa lengi. Plantan er lotublómstrandi. Blómin eru í 6-12 saman í klasa. Laufin ljósgræn, leðurkennd og glansandi og þyrnar eru purpuralitir. Nýtt lauf er djúprautt. Sögð miðlungs stór hérlendis, 50-80 sm há, klifurrósin verður 120-150 sm há og álíka breið.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z3
     
Heimildir   http://www.elkorose.com/ewhrab.html, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.hortico.com, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, http://www3.sympaico.ca/galetta/tales/explorerroses.html, https://www.hort.net/Profile/ros/rosru
     
Fjölgun   Sumar- eða vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður, en talin skuggaþolin, sendinn til leirborinn fremur magur jarðvegur, venjulegt rakastig til rakt. Ekki klippa runnann niður á hverju ári, en hann þarf snyrtingu að vorinu og gott er að sníða dauð blóm af svo runninn haldi áfram að blómstra. Rósin er notuð stök eða í limgerði. Ein planta á m².
     
Reynsla   ‘Alexander MacKenzie’ var keypt í Lystigarðinn 1996 og plantað i beð sama ár, flutt í annað beð 2003. Kól mismikið framanaf, dauð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is