Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.
Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
|
Ættkvísl |
|
Penstemon |
|
|
|
Nafn |
|
attenuatus |
|
|
|
Höfundur |
|
Douglas |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Hlíðagríma |
|
|
|
Ætt |
|
Grímublómaætt (Scrophulariaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Fölgulur, blápurpura til fjólublár. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
30-60 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt með velþroskaða grunnblaðhvirfingu, stönglar grannir, 30-60 sm. Lauf 4-10 x 1-2 sm að leggnum meðtöldum, bandlensulaga til egglaga, heilrend til mjög smátennt, minnka eftir því sem ofar dregur á stönglinum, efstu laufin greipfætt, djúpgræn, hárlaus. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómskipunin lík klasa, stinn, úr 3-7 blómknippum, kirtildúnhærð. Bikar 4-7 mm, flipar lensulaga, heilrendir, með mjóan himnukenndan jaðar. Krónan strend, tvívöruð, 14-20 mm, fölgul eða blápurpura til fjólublá, gin hvít-loðin í efra gómi, gervifrævill nær út í munnan, efst gullinhærður. |
|
|
|
Heimkynni |
|
N-Ameríka (Washington til Oregon og Idaho). |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Léttur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting eða sáning að vori, græðlingar um mitt sumar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í kanta, í hleðslur, í beð með fjölærum jurtum. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þesu nafni, sem sáð ar til 1997 og gróðrsettur í beð 2009. Harðgerður-meðalharðgerður. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|