Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Chionodoxa forbesii
Ættkvísl   Chionodoxa
     
Nafn   forbesii
     
Höfundur   Bak.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Snæstjarna
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   C. luciliae mistúlkun, C. tmolust Whittad, C. siehei Staf.
     
Lífsform   Fjölær laukjurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Mjög djúpblár með hvítt miðband.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Snæstjarna
Vaxtarlag   Lauf upprétt eða útstæð, 7-28 sm.
     
Lýsing   Venjulega er einn blómstöngull á lauk, allt að 30 sm langur með 4-12 blóm. Blómin dálítið hangandi. Blómhlíf mjög djúpblá með hvítt miðband eða bleik með hvíta miðju (hjá 'Pink Giant'), pípan 3-5 mm. Flipar 1-1,5 sm x 4-5 mm. Frjóþræðir 2mm og 3 mm, hvítir.
     
Heimkynni   V Tyrkland (fjöll).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, lífefnaríkur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   Sáning, hliðarlaukar, (laukar eru settir 5-7 sm djúpt).
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, sem undirgróður undir tré og runna, í blómaengi, í grasflatir.
     
Reynsla   Kom í Lystigarðinn sem laukur úr blómabúð. Þrífst vel og blómstrar mikið.
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun t.d. 'Alba', sem er með snjóhvít blóm, 'Pink Gigant', sem er með bleik blóm með hvíta miðju, 'Naburn Blue' sem er með dökkblá blóm með hvíta miðju og 'Tmoli' dvergvaxin jurt, 10 sm með skærblá blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Snæstjarna
Snæstjarna
Snæstjarna
Snæstjarna
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is