Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Sedum hybridum
Ættkvísl   Sedum
     
Nafn   hybridum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Klettahnoðri
     
Ætt   Hnoðraætt (Crassulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Klettahnoðri
Vaxtarlag   Skriðul, fjölær jurt. Stönglar trékenndir, mynda breiðu.
     
Lýsing   Laufin um 2,5 sm, stakstæð, næstum legglaus, spaðalaga, mjókka að grunni, jaðrar gróftenntur við oddinn, heilrend við grunninn, tennur með rauðan odd. Blómskipunin strjál, í endastæðum hálfsveip, 5-8 sm í þvermál, blómin fjölmörg. Krónublöð 5, gul, 6-9 mm, ydd, fræflar 10 talsins.
     
Heimkynni   M & S Úralfjöll, N Asía, hefur numið land í N Og M Evrópu.
     
Jarðvegur   Framræstur, þurr, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori eða hausti, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð, í blómaengi, í hleðslur, sem þekja.
     
Reynsla   Harðgerð tegun, en ekki blendingur þrátt fyrir nafnið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Klettahnoðri
Klettahnoðri
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is