Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Saxifraga aizoides
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   aizoides
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullsteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, sígræn jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur oft með dökkgular dröfnur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   5-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gullsteinbrjótur
Vaxtarlag   Laufgaðir sprotar mynda þykka breið eða gisnar þúfur
     
Lýsing   Lauf 4-22 x 1,5-4 mm, babdlaga til aflöng, ásætin, snubbótt, ydd eða með stuttan brodd, milli- til dökkgræn, ekki bláleit, heilrend eða stöku sinnum með 2 stuttar tennur við endann, oftast kögruð af tannlíkum hárum sem vita fram á við, kalkkirtlar venjulega stakir við oddinn. Blóm stök eða í stuttum, laufóttum klasa með 2-15 blóm. Krónublöð 3-7 mm, venjulega gul, oft með appelsínugulum dröfnum, stundum appelsínugul eða múrsteinsrauð.
     
Heimkynni   Heimskautasvæði í N Ameríku og N Evrópu (Ísland).
     
Jarðvegur   Rakur, fremur súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Við tjarnir og læki, í beð og steinhæðir (ef hann er vökvaður vel).
     
Reynsla   Harðgerð planta. Þarf góðan jarðraka, einkum að vori. Þrífst best í grýttri steinhæð, mót norði eða norðaustri (Köhlein, Saxifragas). Afbrigðin eru bæði gróskumeiri og fallegri en aðaltegundin.
     
Yrki og undirteg.   var. atrorubens (Bertol) Sternb. Lauf þétthærð á blaðjöðrum. Krónublöð múrsteinsrauð, diskur djúpskarlatsrauður (Heimkynni: Austurríki). var. aurantiaca - Með rauðgulum blómum (ekki í RHS).
     
Útbreiðsla  
     
Gullsteinbrjótur
Gullsteinbrjótur
Gullsteinbrjótur
Gullsteinbrjótur
Gullsteinbrjótur
Gullsteinbrjótur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is