Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Ribes |
|
|
|
Nafn |
|
warszewiczii |
|
|
|
Höfundur |
|
Jancz. ex M.Vilm. & Bois |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Síberíuribs |
|
|
|
Ætt |
|
Garðaberjaætt (Grossulariaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Ljósrauður. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Blóm snemmsumars. |
|
|
|
Hæð |
|
-1.5 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttur runni, allt að 1,5 m hár, mjög líkur R. spicatum. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf allt að 9 sm, kringlótt, 3-5 flipótt, hjartalaga við grunninn, ljós dúnhærð á neðra borði, a.m.k á æðastrengjunum. Blómskipunin 5-7 sm, hangandi klasi með fölrauð blóm. Berin 1 sm í þvermál, hnöttótt, svartrauð, súr. |
|
|
|
Heimkynni |
|
A Síbería. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
3 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, síðsumar- og/eða vetrargræðlingar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í blönduð trjá- og runnabeð og víðar. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1981, fræið var frá Moskvu. Hefur ekkert kalið gegnum árin, var með ber 2011.
|
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|