Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Podophyllum peltatum
Ættkvísl   Podophyllum
     
Nafn   peltatum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ilmegg
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Snjóhvítur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   30-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ilmegg
Vaxtarlag   Jarðstönglar skriðulir. Lauf 30 sm i þvermál, djúp handflipótt x 5-9, flipar tvískiptir í oddinn, stundum fínhærðir á neðra borði.
     
Lýsing   Blómstönglar með 2-3 lauf eða lauflausir. Blómin álút, 3-5 sm breið, vaxa úr blaðöxlum efstu laufanna eða milli 2 efstu laufanna. Krónublöð stór, 25-40 mm, hvít, tennt í oddinn. Fræflar 12-18. aldin græn, vera gul þegar þau þroskast, 2-5 mm, æt. Fræin eru eitruð.
     
Heimkynni   A N Ameríka - suður til Texas.
     
Jarðvegur   Djúpur, rakaheldinn, lífefnaríkur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, græðlingum af jarðstönglum og með nýþroskuðum fræjum.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður undir tré og runna, í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1987 og gróðursett í beð 1989. Harðgerð planta sem hefur reynst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ilmegg
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is