Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Polystichum lonchitis
Ættkvísl   Polystichum
     
Nafn   lonchitis
     
Höfundur   (L.) A. Roth, Tent. Fl. Germ. 3(1): 71. 1799.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skjaldburkni
     
Ætt   Dryopteridaceae (Skjaldburknaætt)
     
Samheiti   Aspidium asperum Gray; Aspidium lonchitis (L.) Sw.; Dryopteris lonchitis (L.) Kuntze;
     
Lífsform   Fjölær burkni (sígrænn)
     
Kjörlendi   Vex í urðum og gjótum, snjódældum og gilskorningum. Allvíða í flestum landshlutum en sjaldséður um sunnanvert landið. Skjaldburkninn er snjódældategund eins og skollakamburinn, en gerir vægari kröfur um snjólegu og hefur því víðari útbreiðslu.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími  
     
Hæð   0.10 - 0.35 m
     
 
Skjaldburkni
Vaxtarlag   Fjölær, lágvaxinn, sígrænn burkni. Sterklegir, stuttir, skriðulir eða uppréttir jarðstönglar, alsettir gagnsæju hreistri, 10-35 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðin löng, lensulaga einfjöðruð, skinnkennd með hálfmánalaga, með 20-40 skarptenntum, þéttstæðum smáblöðum. Smáblöðin skakktígullaga, 1-1,5 sm á lengd, lengst um miðju blöðkunnar en styttri til beggja enda. Miðstrengur blaðsins grópaður og hreistraður alveg upp úr. Gróblettir í tveim röðum neðan á smáblöðunum, yfirleitt aðeins á efra hluta blöðkunnar. Skjaldlaga gróhula yfir blettunum meðan þeir eru ungir. 2n = 82. LÍKAR: Skollakambur. Skjaldburkninn er auðþekktur frá honum á tenntum smáblöðum.
     
Jarðvegur   Auðræktaður í frjóum, rökum jarðveg í skugga eða hálfskugga.
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=200004605; http://delta-intkey.com/britfe/www/polylonc.htm
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Algengur þar sem snjóþungt er á Vestfjörðum, miðju Norðurlandi og Austfjörðum. Sjaldgæfur annars staðar, og aðeins á einum stað á Suðurlandi frá Ölfusá austur að Skeiðará. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Evrópa, Asía, Ástralía, Grænland, Mexíkó, Marakkó, Tonga, Tyrkland, V Sahara ov.
     
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Skjaldburkni
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is