Lystigarðurinn er grasagarður og skrúðgarður sem er rekinn af Akureyrarbæ.
Opið/Lokað og alls staðar þar á milli
Garðurinn er aðgengilegur allt árið.
Sumartími (1. júní - 30. sep)
Garðhliðin og salerni eru opin frá 9-22
Vetrartími (1. nov- 31. maí)
Garðhliðin eru opin en salerni eru lokuð.
LYST er opið ALLT ÁRIÐ
10-19 sunnudaga - fimmtudaga
10-23 föstudaga - laugardaga
(nota bene. það eru salerni fyrir viðskiptavini á LYST)
Lystigarðurinn er á suðurbrekkunni sunnan Menntaskólans.
Almenningsgarðurinn var opnaður formlega 1912 en grasagarðurinn 1957. Garðurinn hefur verið stækkaður þrisvar frá upphafi og er nú um 3,7 hektarar.
Hlutverk garðsins er margþætt. Fyrst og fremst er þó lögð áhersla á að finna með innflutningi og prófunum, fallegar, harðgerar, erlendar plöntur sem eftirsóknarvert væri að rækta hérlendis auk þess að vera almenningsgarður sem nýtist fólki til fróðleiks og skemmtunar.